mánudagur, 22. september 2008
Ég kom heim á laugardaginn
þegar við vorum komin til pellworm þá kom bíll sem sótti töskurnar okkar, hann keyrði töskurnar okkar þar sem við ætlum að eiga heima og á meðan við tókum rútu. Rútan stoppaði hjá sundlaug sem heitir pelle welle við fórum út þar og löbbuðum til hjólaleigunnar þar fengum við lánuð 14 mjög góð hjól. Við hjóluðum til hússins sem við ætlum að eiga heima í. Þetta er mjög stórt og flott hús þau sem eiga heima í húsinu eiga fullt af svínum nokkrar rollur og alveg hellingur af gæsum og hænum og svo eiga þau 2 hunda, einn af þeim heitir cuba og hinn twix, cuba er frekar stór og twix er lídill. Næsta dag fengum við raf sem við áttum sjálf að slípa mitt raf varð mjög flott, eftir það fórum við með ferju á eina litla eyju sem að eru bara 4 hús, eitt af húsunum er skóli og kirkja og það eru bara 4 börn í skólanum. Við tókum smá labbitúr á eyjuni og tókum svo ferjuna heim aftur. þann 3 dag fórum við á vatt vandring, það var mjög gaman við löbbuðum þar sem stundum er þriggja metra hát vatn, en það var ekki neitt vatn þarna þegar við vorum að labba þarna eftir þessa vatt vandring ferð fórum við í pelle welle sundlaugina mér fannst hún vera mjög skrítin en það var samt gaman. 4 dag hjóluðum við til vitans og fóru alveg up í toppin á honum, ég tók alveg fullt af myndum . Það var hægt að giftast í vitanum og það var hægt að leigja herbergi . Svo fórum við líka að sjá milluna, þar stoppuðum við og fengum okkur að borða, rúbrauð með þýskri kæfu það var gott. Þann5 dag hjóluðum við hríngin í kríngum eyjuna við fórum að skoða gamla kirkju, hún var mjög flott en samt dáldið ónýt, eftir að við hjóluðum hríngin í kríngum eyjuna fórum við í bæinn að kaupa nokkrar gjafir,og þegar við vorum búin að kaupa gjafir hjóluðum við heim og náðum í sund fötinn okkar og fórum í pelle welle í 2 eða 3 tíma, svo fórum við heim að pakka, klukkann 8 áttum við að vera búin að pakka og setja töskurnar okkar út svo kom bíll klukkan 9 og sótti töskurnar okkar heim til sín .Klukkan 6 á morgnana hjóluðum við til hjólaleiguna og skiluðum hjólunum,og tókum taxa til ferjunar á meðan karlinn keyrði töskurnar okkar til ferjuna, þegar ferjan lagði af stað sáum við nokkra seli sem voru mjög sætir. Heima ferðin var næstum alveg eins og ferðin til pellworm . það er mjög gott að vera komin heim aftur. Björkin
laugardagur, 13. september 2008
á leiðinni til Þýskalands
Í dag fór ég í afmæli til skólafélaga Kevin. Hann bauð öllum bekknum í böff og bowling, en það komu bara 7 úr bekknum með afmælis barninu. Okkur var deilt í hópa stelpurnar voru saman og strákarnir saman. Á mánudaginn fer ég til Þýskalands á litla eyju sem heitir pellworm. Það tekur minnst 10 tíma að fara þangað, við förum í 3 lestar 1 rútu og 1 ferju. Við verðum á pellworm í 5 daga. Við fáum lánuð hjól, við ætlum nefnilega að hjóla mikið. Súsanna kennarinn minn sagði að það ætti að koma okkur á óvart hvað við ætlum að gera. Það verður mjög gaman í Þýskalandi. Ég er búin að breyta í herberginu mínu, það er mjög flott núna. Ég og mamma færðum rúmið mitt undir gluggana, og skrifborðið þar sem rúmið mitt var. Svo er ég líka búin að fá nýjan lampa, hann er mjög flottur, maður getur setið á honum. Gunnar á svona lampa og Nora vinkonan mín líka. Ég er mjög ánægð með herbergið mitt. Björkin
mánudagur, 14. apríl 2008
Ég átti afmæli þan 11.april
Ég átti afmæli þann 11.apríl. og hélt up á afmælið mitt þann dag. Ég bauð mömmu,pabba Ingvari Andra og Freyu og við fórum í bowling. Það var gaman. það gekk mjög vel hjá mér en pabbi fór alltaf fram úr mér. Hann Ingvar Andri vildi ekki vera með . Svo þegar við vorum búin að spila 2 spil fengum við okkur að borða. Já og svo afmælis gjafirnar ég fékk 3 bækur 1 af þeim heitir Fíasól á flandri og Einu sinni var dramadrottning í ríki sínu og high school musical og 2 peysur 1 par skó og 1 risa stórt búr fyrir síslu slöngu og hellir og göng sem hún er alltaf í og 1 tré kubb sem hún getur klifrað á og hún er mjög ánægð með þetta allt og svo líka 2 singstar diska 1 af diskunum er eiginlega alveg danskur en samt dálítið enskur og hinn diskurin var með 80's lögum og náturulega smá peníng líka . Og þann 12 .mars fór ég til íslands að hitta fjölskyldu mína og náttúrulega hann kát .Svo fékk ég 3 páskaegg og eitt hálft eitt af páska eggjunum var frá ömmu ásu og það var númer 4 og annað páska eggið var frá ömmu jenny og 3 páska eggið var frá mömmu og pabba og ég fór líka í bowling á íslandi með ömmu ásu og eiði það var gaman . Endir. björkin
sunnudagur, 2. mars 2008
Björk og Sísla
Hæ það er dálítið langt síðan ég skrifaði síðast. Það er út að því að ég var svo upptekin af slöngunni sem ég er með í heimsókn. Hún heitir Sísla. Mamma er ekki svo hrifin að henni en pabba fannst hún vera ágæt. Mamma er heldur ekki hrifin að því að hafa dauðar mýs í frystinum. Ég gaf henni Síslu dauða mús í gær og vardálítið hrædd í byrjuninni að því að ég hélt að hún myndi bíta mig og út af því að við vorum með krukku og ég setti músina fyrst í krukkuna og svo Síslu en hún gat ekki bitið í músina út að því að krukkan var of lítil. En þá fundum við ísbox sem við gátum notað í staðin, þá náði hún músinni en mér fannst að músin væri allt of stór en hún gat alveg borðað hana. Það tók korter fyrir Síslu að borða músina en ef að það myndi taka minna en 10 mínútur þá á hún að fá stærri mús. Næst ætla ég fyrst að setja Síslu í boxið og svo músina. Nú sér maður svona ílanga kúlu á maganum hennar. SLUT PRUT FINALE björkin
mánudagur, 21. janúar 2008
Fastelavn
Hæ það er dáldið langt síðan ég skrifaði bloggið mitt.
Ég er að fara til Berlínar á laugardaginn og þá ætla ég að taka Singstarið mitt með, það verður gaman, ég ætla að vinna þau öll. Þegar ég kem heim þá fer ég í Fastelavn. Ég ætla að vera grís og Nanna vinkona mín ætlar að vera pabba grís og ég ætla að vera mamma grís og Freya vinkona mín ætlar að vera beibí grís og þá ætlum við að slá tunnuna með bekknum það verður líka mjög gaman. Ég fer kannski til Íslands um páskana að hitta ömmurnar mínar og afa mína og frændur mína og frænkurnar mínar og alla fjölskylduna mína og líka litla sæta hundinn hennar ömmu, hann heitir Kátur út af því að hann er alltaf svo kátur. Svo fer amma mín með mér til baka að heimsækja mig og mömmu og pabba og litla bróðir minn og Gunnar og þegar amma mín kemur heim til mín ætla ég að VINNA hana í SINGSTARI TRALALALAAA búið björk
Ég er að fara til Berlínar á laugardaginn og þá ætla ég að taka Singstarið mitt með, það verður gaman, ég ætla að vinna þau öll. Þegar ég kem heim þá fer ég í Fastelavn. Ég ætla að vera grís og Nanna vinkona mín ætlar að vera pabba grís og ég ætla að vera mamma grís og Freya vinkona mín ætlar að vera beibí grís og þá ætlum við að slá tunnuna með bekknum það verður líka mjög gaman. Ég fer kannski til Íslands um páskana að hitta ömmurnar mínar og afa mína og frændur mína og frænkurnar mínar og alla fjölskylduna mína og líka litla sæta hundinn hennar ömmu, hann heitir Kátur út af því að hann er alltaf svo kátur. Svo fer amma mín með mér til baka að heimsækja mig og mömmu og pabba og litla bróðir minn og Gunnar og þegar amma mín kemur heim til mín ætla ég að VINNA hana í SINGSTARI TRALALALAAA búið björk
þriðjudagur, 4. desember 2007
bráðum byrja jólin
ég er alveg á fullu að gera jólagjafir þannig að ég náði ekki alveg að skrifa blogg. Ég er líka búin að gera margar jólagjafir og þær eru allar flottar, en við erum ekki enn byrjuð að skreyta, en við erum komin með jóladótið. Ég er sú eina sem er byrjuð að skreyta. Honum Ingvari Andra er byrjað að hlakka rosa mikið til, honum finnst vera rosalega gaman að opna dagatalið og að opna pakkadagatalið. Það var basar í skólanum mínum og bekkurin minn átti að flauta á sviðinu og ég var að flauta á rosalega stóra flautu hún var 2svarsinnum stærri en litlu flauturnar í bekknum.
Í bekknum er byjrað undirbúa litlu jólin, þá á maður að skrifa á seðla og svo á maður að draga annan miða og gá hvern maður sé með og svo á maður að gefa honnum eða henni pakka en maður veit ekkert hver gaf manni pakkann - það er það sem er gaman
björkin
Í bekknum er byjrað undirbúa litlu jólin, þá á maður að skrifa á seðla og svo á maður að draga annan miða og gá hvern maður sé með og svo á maður að gefa honnum eða henni pakka en maður veit ekkert hver gaf manni pakkann - það er það sem er gaman
björkin
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)