ég er alveg á fullu að gera jólagjafir þannig að ég náði ekki alveg að skrifa blogg. Ég er líka búin að gera margar jólagjafir og þær eru allar flottar, en við erum ekki enn byrjuð að skreyta, en við erum komin með jóladótið. Ég er sú eina sem er byrjuð að skreyta. Honum Ingvari Andra er byrjað að hlakka rosa mikið til, honum finnst vera rosalega gaman að opna dagatalið og að opna pakkadagatalið. Það var basar í skólanum mínum og bekkurin minn átti að flauta á sviðinu og ég var að flauta á rosalega stóra flautu hún var 2svarsinnum stærri en litlu flauturnar í bekknum.
Í bekknum er byjrað undirbúa litlu jólin, þá á maður að skrifa á seðla og svo á maður að draga annan miða og gá hvern maður sé með og svo á maður að gefa honnum eða henni pakka en maður veit ekkert hver gaf manni pakkann - það er það sem er gaman
björkin
þriðjudagur, 4. desember 2007
fimmtudagur, 8. nóvember 2007
Kínversk vika
í skólanum erum við með kínverska konu í heimsókn og hún var að kenna okkur ýmislegt.
Nú kann ég að skrifa smá kínversku, það er gaman og við sungum líka kínversku og dönsuðum og gerðum chai-chi, það var dáldið erfitt. Ég er líka búin að kaupa kínverska skó og kamb og svo var hún að máta fullt af kínverskum fötum og fötin voru rosalega flott og það voru líka sum föt sem voru með langar ermar, því lengri sem ermarnar eru því ríkari er maður, og hún er mjög sæt kona björkin

fimmtudagur, 25. október 2007
lánga amma er dáin
Nú er Amma og Ásdís farnar heim og á leiðinni heim fengum við wiiíð lánað hjá honum Gunnari og það er mjög gaman. Það er búið að jarða hana langömmu, ég sakna hennar en nú er hún komin til hans langafa, hún mamma skrifaði grein um hana, það stóði að hún væri með 15 barnabörn en svo fattaði mamma að hún væri með 16 barnabörn og það er dáldið mikið. Það er bráðum hallowen og það verður gaman, við erum búin að gera graskerið það er flott þegar maður setur kerti inn í það þá lýsist í gegnum það og kanski ætla ég að sníkja smá nammi það verður gaman. Björkin.
þriðjudagur, 16. október 2007
amma er í heimsokn
Amma og Gunnar eru komin, við fórum út í labbitúr í kringum tjörnina. Og amma átti að passa mig og Ingvar Andra á meðan mamma og pabbi fóru til London. Við 3 höfðum það bara rosalega kósí. Svo komu mamma og pabbi heim og amma sagði að þau mættu bara fara aftur. Svo kom Ásdís og Gunnar og þá fórum við í bæinn útaf því að hún vildi versla FÖT. Svo fórum við á kaffihús og ég fékk mér bollu en ég gat ekki borðað hana út að því að hún var svo hörð, þannig að ég borðaði bara helmíngin. Svo í dag ætlum við kannski að fara í dýragarðinn það verður gaman. björkin
fimmtudagur, 4. október 2007
amma er að koma!
í dag eru bara 2 dagar þangað til að amma kemur og ég hlakka rosa mikið til, og ásdís kemur líka eftir 9 daga. Ég er búin að fá annan celló kennara, hún heitir johanne og hún er mjög góð. Í dag var ég líka í samspil með kennara sem heitir jane hún kemur frá einverju öðru landi þannig að maður skilur hana ekki svo vel.
björkin
björkin
fimmtudagur, 27. september 2007
leiðinlegur skóladagur
Í dag vorum við með Guðmundi leikfimis kennarann okkar. Hann sagði að við áttum að vera úti í labbitúr. Þá fórum við út og það var allt ógeðslega blautt og ég var í sumar skóm þannig að ég varð rennandi blaut. Svo labbaði ég niður brekku og brekkan var rosalega stór og grasið var blautt, svo hljóp ég óvart og svo þegar ég var komin niður fór ég mörgum sinnum í kollhnís það var dáldið gaman.
Svo fórum við heim og fórum inn í bekkinn og fengum okkur te og nesti.
Svo sagði hann að við áttum að fara út þá öskruðum við öll nnneeeiii.
Það var risastór vörubíll úti og helti sandi á grasið og við áttum að grafa það í sandkasann. En við vorum ekki með neina skó út af því að þeir voru blautir og þá vorum við komin með sand á táslurnar. Svo áttum við að þvo stofuna þá sagði hann að við mundum fá frí, nei þá sagði hann að við fengum samt ekki frí og svo loksins fengum við frí .

þriðjudagur, 25. september 2007
speltskonsurnar
í gær fórum við út í labbitúr með stóru flugdrekana. Fyrst fórum við með kolkrabbann minn. Svo fiskinn hans Ingvars Andra. Fiskurinn var mjög erfiður. Kolkrabbinn var mjög léttur. Svo fórum við heim og ætluðum að fá okkur skonsur en það var ekki til neitt hveiti þannig að við notuðum bara spelt hveiti. Hann Ingvar Andri vildi hjálpa hann fékk að setja mjólkina í. En það mistókst hann hellti í 1 og hálfum líter þannig að það var dáldið mikið. Mamma reyndi að gera eitthvað úr þessu og smakkaði fyrstu skonsuna, mömmu fannst hún vera vond og hún ætlaði að fara að henda þessu en þá sagði ég að ég vildi búa til skonsur. Þá gerði ég skonsur svo leyfði ég pabba að smakka og mömmu og ingvari andra þau sögðu öll að þetta var gott þannig að ég gerði fleiri en það var ennþá mikið deig eftir, við hentum því bara björkin.
sunnudagur, 23. september 2007
bekkurinn er fínn
í gær var ég í skólanum. Eftir skólan áti ég að þvo stofuna með Láru vinkonu mini. En hún sagði að hún gæti ekki hjálpað mér. Þá spurði ég hana freyu hún gat alveg hjálpað mér. Svo kom Lára inn í bekkinn og sagði að hún gæti samt alveg hjálpað mér. þá vorum við þrjár að þvo stofuna, Lára sópaði bara pínulítin búnka af gólfinu og vaskaði upp 1 disk og það voru 2 bollar eftir og 1 diskur. Svo sagði hún erum við ekki búin sagði hún og ég og freya sögðum bara jájá þú mátt alveg fara. 'Eg sópaði gólfið og það var risa stór búnki eftir og og freya þurrkaði töfluna. það var allt ógeðslega flott í bekknum. 'Eg hef aldrei séð eins flottan bekk áður.
Björkin
Björkin
þriðjudagur, 18. september 2007
á laugar daginum gerðist eitt mjög leiðinlegt. Lísa er dáin og það er mjög leiðinlegt hún var svo góður hamstur. hún var orðin 3 ára gömul og hamstrar geta einlega ekki orðið eldri en það. hamsturin henar vinkonu minar varð 4 og hálfs, það er örugglega það elsta sem hamstrar geta orðið en hamsturin hennar er dáin fyrir löngu. Ég bjó til rosalega flottan kassa fyrir hana lísu. við grófum risa stórt gat við hliðina á roslega flottu krulluðu tré. Við settum lísu ofan í gatið og ég fór að gráta uhuuuu... björkin
þriðjudagur, 11. september 2007
plet kanínann mínn
Ég er með kanínuna mína í heimsókn. Kanínan heitir "plet" og hann er rosalega góður og sætur. Ég fór út í labbitúr með hann svo fór ég að sofa. Þegar ég vaknaði var hann plet alveg stein sofandi. Ég fór í skólann og þegar skólinn var búin fór ég í byggeren í smá stund og á leiðinni heim sá ég íkorna og hann var rosa flottur. Ég kom heim og fór út í labbitúr með hann plet og það var gömul kona sem labbaði framhjá og sagði en hvað sætt marsvín en þetta var plet kanínan mín.HaHaHaHa björkin
miðvikudagur, 5. september 2007
strætó ferðin
í gær eftir skóla var ég og liv bekkja systir mín að leika saman. Við ætluðum að leika heima hjá henni. 'A leiðinni heim fórum við í strætó og í strætóinum voru unglingar fyrir aftan okkur og þeir potuðu í hausinn okkar og spörkuðu í sætin og við vorum orðnar svo pirraðar að við fórum út úr strætóinum fyrr. Við ætluðum að fara í annan strætó en við nenntum ekki að bíða, þannig að við löbbuðum alla leiðina heim til hennar og það er rosalega langt. Svo vorum við bara að leika okkur og svo komu mamma mín og pabbi að sækja mig.
björkin
björkin
sunnudagur, 2. september 2007
með gunnar og sunnu
í gær fengum við Gunnar og Sunnu í heimsókn. Við ætluðum að hafa súsí en það var ekki til fiskur þannig að við vorum bara með raklett og þau kíktu aðeins upp og Sigrún og Elli komu niður og þau spiluðu partý og kó og ég mátti ekki vera með út af því að ég átti að fara að sofa og það voru stelpur á móti strákum og strákarnir unnu og þau sváfu hjá okkur inni hjá Ingvari Andra og hann Ingvar Andri svaf inni hjá mér og í dag förum við í tívolíið Björkin
laugardagur, 1. september 2007
í gær var loppemarket og ég keypti leir vasa og tvær lyklakippur í fiskedammen.
Og eftir loppemarket fórum við í bæinn það var opið til klukkan 10 um kvöldið og ég fékk skyrtu og peysu. Við fórum á voðalega fínan pízzu stað og ég borðaði heila pízzu . og við fórum heim klukkan 9 og ég náði ekki að skrifa bloggið mitt. en þetta var voða kósí kvöld og voða skemmtilegur dagur björkin.

fimmtudagur, 30. ágúst 2007
í dag eftir skóla ætlaði ég að leika við hana freyu en við ætlum kannski bara að velja annan dag.
Og í byggerinum grilluðu við okkar eigin mat og maturin var rosalega góður.
Í kvöld var eitthvað hús fyrir börn og unglinga það var í brugshuset, maður á bara að spila og eitthvað þannig en ég vissi ekki alveg um að ég vildi fara í dag kannski fer ég bara næst.
ég ætlaði að fara að spila borð fótbolta en það var engin að spila við . björkin

miðvikudagur, 29. ágúst 2007
í gær fór ég í fyrsta tímann í billedkunst og það tók rosalega langan tíma, þetta byrjaði klukkan 2 og var búið klukkan 5.
Í skátunum erum við að læra að labba með hnífana okkar og hvernig við eigum að tálga með hnífnum og allskonar og þegar við erum búin að læra allt þetta fáum við kniv bevis og ég hlakka rosa mikið til.

sunnudagur, 26. ágúst 2007
gaman í heimsókn
Í gær fórum við í heimsókn til Gunnars Inga og Sunnu og við spiluðum skemmtilegan tölvuleik sem heitir wii og við borðuðum saman og það var bara rooooooooooooosalega gaman. Við fórum líka smá í bæinn og ég keypti mynd fyrir psp tölvuna mína og myndin er ógeðslega skemmtileg og fyndin, það er um 12 börn og það er rosalega erfit hjá þeim, ég horfði á hana á leiðinni heim.
Við fórum smá í íkea að kaupa ramma fyrir bílamyndirnar sem pabbi gaf Ingvari Andra, þær eru rosalega flottar í rammanum.
björkin
Við fórum smá í íkea að kaupa ramma fyrir bílamyndirnar sem pabbi gaf Ingvari Andra, þær eru rosalega flottar í rammanum.
björkin
föstudagur, 24. ágúst 2007
Pabbi kominn! og fylleríið
Ég fór til tannlæknis í morgun og það hafði sargað aðeins úr tönninni minni og þá fékk ég fyllerí (fyllingu :) ) í tönnina það var dáldið óþægilegt. Og svo fór ég í skólann og í næst síðasta tímanum var leikfimi og við vorum að spila rundbold, freya vinkona mín var á undan mér og þegar hún sveiflaði kylfunni fór kylfan í lærið á mér þá fór ég að gráta út að því það var ógeðslega vont en það var ekki viljand,i það var alveg óvart.
Eftir skóla fór ég í bæinn með mömmu og ingvari andra að kaupa innflutningsgjöf fyrir Gunnar og Sunnu, því að við ætlum að heimsækja þau til aarhus á morgun og svo fórum við að sækja pabba úr flugvélinni og við vorum að kaupa afmælis gjöf handa mömmu.

fimmtudagur, 23. ágúst 2007
eftir skóla
Eftir skólann fór ég í byggeren og þar var flóamarkaður og það var allskonar til sölu. Við poppuðum yfir báli og við fengum sykurpúða á pinna á bálinu þangað til að þeir bráðna og þá setjum við þá á kex við fengum líka bollur og djús.
PABBI KEMUR Á MORGUN og mér hlakkar rosa mikið til. björkin
PABBI KEMUR Á MORGUN og mér hlakkar rosa mikið til. björkin
miðvikudagur, 22. ágúst 2007
skólaskátacello
ég var í skólanum í dag við erum komin með nýjan músík kennara. Ég ætla líka að segja smá um skátana sem voru í gær, við fórum í 3 leiki svo fengum við kökur og djús þegar við vorum búin að borða fórum við öll í hring og það fyrsta sem karlinn sagði var björk! og þá fjékk ég 1 árs merkið sem maður á að sauma á búninginn sinn.
Ég fór í dag í cello það gekk bara mjög vel og það var líka bara gaman að spila aftur björkin
Ég fór í dag í cello það gekk bara mjög vel og það var líka bara gaman að spila aftur björkin
þriðjudagur, 21. ágúst 2007
Bæjarferð
Við fórum í bæjinn í dag að skoða fullt af gömlum húsum sem rosalega ríkir menn bjuggu til. Húsin voru rosalega stór og falleg og eitt lítið andlit sást á múrnum, það var að ulla á eitt rautt hús út að því að það var flottara og fallegra en hitt, það var rosa gaman að sjá það.
Svo er ég núna að fara í skátanna
bæ bæ björkin
Svo er ég núna að fara í skátanna
bæ bæ björkin
mánudagur, 20. ágúst 2007
nýja bloggið mit
í dag var fyrsti skóladagurinn minn og ég fór í byggeren og fór í garðinn minn, þar var fullt af kartöflum undir jörðinni. Þær voru rosalega flottar það voru líka gulrætur og sykurbaunir og ég kíkti líka á hann Plet kanínuna mína, hann var ofsa glaður að sjá mig. Ég fór út í labbitúr með hann. Það er líka ein saga um hana lísu hún er orðin 2 og hálfs árs gömul og mikið lasin.
björkin
björkin
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)