Í gær fórum við í heimsókn til Gunnars Inga og Sunnu og við spiluðum skemmtilegan tölvuleik sem heitir wii og við borðuðum saman og það var bara rooooooooooooosalega gaman. Við fórum líka smá í bæinn og ég keypti mynd fyrir psp tölvuna mína og myndin er ógeðslega skemmtileg og fyndin, það er um 12 börn og það er rosalega erfit hjá þeim, ég horfði á hana á leiðinni heim.
Við fórum smá í íkea að kaupa ramma fyrir bílamyndirnar sem pabbi gaf Ingvari Andra, þær eru rosalega flottar í rammanum.
björkin
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Hæ Björk mín.
Mikið hefur verið gaman hjá þér í gær hjá Gunnari og Sunnu það er nú gott að það skuli vera svona stutt á milli - þau koma örugglega bráðum til þín í heimsókn.
Ég fór í gær með Tómasi Loga í Smárabíó að sjá Skoppu og Skrítlu en það er barnaleikrit sem er sýnt í bíó núna. Og Tómasi fannt voða gaman og hann hló mikið.
Rosa gaman að fá þig Björk!.. sjáumst fljótt aftur og takk fyrir pakkana! :)
Skrifa ummæli