Hæ það er dáldið langt síðan ég skrifaði bloggið mitt.
Ég er að fara til Berlínar á laugardaginn og þá ætla ég að taka Singstarið mitt með, það verður gaman, ég ætla að vinna þau öll. Þegar ég kem heim þá fer ég í Fastelavn. Ég ætla að vera grís og Nanna vinkona mín ætlar að vera pabba grís og ég ætla að vera mamma grís og Freya vinkona mín ætlar að vera beibí grís og þá ætlum við að slá tunnuna með bekknum það verður líka mjög gaman. Ég fer kannski til Íslands um páskana að hitta ömmurnar mínar og afa mína og frændur mína og frænkurnar mínar og alla fjölskylduna mína og líka litla sæta hundinn hennar ömmu, hann heitir Kátur út af því að hann er alltaf svo kátur. Svo fer amma mín með mér til baka að heimsækja mig og mömmu og pabba og litla bróðir minn og Gunnar og þegar amma mín kemur heim til mín ætla ég að VINNA hana í SINGSTARI TRALALALAAA búið björk
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)