þriðjudagur, 25. september 2007

speltskonsurnar

í gær fórum við út í labbitúr með stóru flugdrekana. Fyrst fórum við með kolkrabbann minn. Svo fiskinn hans Ingvars Andra. Fiskurinn var mjög erfiður. Kolkrabbinn var mjög léttur. Svo fórum við heim og ætluðum að fá okkur skonsur en það var ekki til neitt hveiti þannig að við notuðum bara spelt hveiti. Hann Ingvar Andri vildi hjálpa hann fékk að setja mjólkina í. En það mistókst hann hellti í 1 og hálfum líter þannig að það var dáldið mikið. Mamma reyndi að gera eitthvað úr þessu og smakkaði fyrstu skonsuna, mömmu fannst hún vera vond og hún ætlaði að fara að henda þessu en þá sagði ég að ég vildi búa til skonsur. Þá gerði ég skonsur svo leyfði ég pabba að smakka og mömmu og ingvari andra þau sögðu öll að þetta var gott þannig að ég gerði fleiri en það var ennþá mikið deig eftir, við hentum því bara björkin.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þetta var skemmtileg saga og hefði nú verið gaman að fylgjast með þegar Ingvar Andri hellti svona mikilli mjólk í deigið ha ha ha