Hæ það er dálítið langt síðan ég skrifaði síðast. Það er út að því að ég var svo upptekin af slöngunni sem ég er með í heimsókn. Hún heitir Sísla. Mamma er ekki svo hrifin að henni en pabba fannst hún vera ágæt. Mamma er heldur ekki hrifin að því að hafa dauðar mýs í frystinum. Ég gaf henni Síslu dauða mús í gær og vardálítið hrædd í byrjuninni að því að ég hélt að hún myndi bíta mig og út af því að við vorum með krukku og ég setti músina fyrst í krukkuna og svo Síslu en hún gat ekki bitið í músina út að því að krukkan var of lítil. En þá fundum við ísbox sem við gátum notað í staðin, þá náði hún músinni en mér fannst að músin væri allt of stór en hún gat alveg borðað hana. Það tók korter fyrir Síslu að borða músina en ef að það myndi taka minna en 10 mínútur þá á hún að fá stærri mús. Næst ætla ég fyrst að setja Síslu í boxið og svo músina. Nú sér maður svona ílanga kúlu á maganum hennar. SLUT PRUT FINALE björkin
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Vá hvað þú ert hugrökk að eiga slöngu. Mig hlakkar til að sjá hana í MIKILLI FJARLÆGÐ frá henni.
Þetta er örugglega mikið ævintýri að eiga slöngu það eiga nefnilega ekki margir slöngur allavega ekki á Íslandi því það er bannað held ég.
Þú verður að láta mömmu og pabba taka mynd af henni og setja á bloggsíðuna þeirra
´knús knús
Amma Ása
Hæ sæta mín, flott blogg hjá þer :) hlakka til að sjá þig eftir nokkra daga.
Ásdís frænka
Til hamingju með afmælið sæta mín:) sakna þín!
Kv Ásdís frænka
Skrifa ummæli